21.5.2011 | 09:51
Óvenjulega fólkið
Ólíkt þessum fjármálaráðherra er ég greinilega úti á þekju, ég stóð nefnilega í þeirri trú að ég og flestir í kringum mig værum venjulegt fólk. Mér skjátlaðist. Við erum óvenjulegt fólk sem fjárfesti í íbúðarhúsnæði og fjármagnaði það að hluta til með lánum.
Blokkaríbúð fyrir daga fasteignabólunnar:
31.12.2005 Staða láns 9.290.685, Fasteignamat 14.011.000. Hrein eign 4.720.315
31.12.2010 Staða láns 13.117.115 Fasteignamat 14.200.000. Hrein eign 1.082.885
En hann mikið á hann nú gott þessi blessaði íbúðareigandi, því hin góða ríkisstjórn kemur til bjargar og lagar stöðuna í vaxtabótakerfinu. Því fær hann 72.912 kr. í vaxtabætur og 78.703 kr. með sérstakri vaxtaniðurgreiðslu. Samtals 151.615 kr. Íbúðareigandinn vill þó frekar fá leiðréttingu á láninu, en aurana. Þvílíkt vanþakklæti! En greyið, hann er jú í hópi hinna óvenjulegu.
Ætli Steingrímur, Jóhanna og ríkisstjórnin vilji einvörðungu byggja þetta land með venjulega fólkinu. Venjulega fólkið, hvaða fólk er það? Er það fólkið sem fær afskrifað, fólkið sem fékk inneign sína í bönkunum að fullu bætta, fólkið sem fær fjármagn og nýjar kennitölur til þess að keyra í þrot? Því margir í hópi hinna óvenjulegu sem áttu ekki bankainnistæðu, bara hreina eign í steypu, eru að gefast upp. Þetta óvenjulega fólk mun flytja úr landi eða hefur þegar flutt, í von um betra og mannsæmandi líf.
Þvílík framtíðarsýn!
Baráttukveðjur til allra hinna óvenjulegu, Hundamamman
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á samfélagi og stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
„Ekki hjá venjulegu fólki“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.4.2011 | 23:11
Gleðilegt Sumar!
Gleðilegt sumar bloggheimur allur og veraldarvefur.
Mamma hefur verið að nota bloggið mitt undanfarið en nú er tímabært að ég láti ljós mitt skína í stíl við sólina sem einhvern tímann ætlar að láta sjá sig.
Mamma kvartar yfir veðrinu og vill fá sólina og lofthitann upp á við. Ég kann hins vegar miklu betur við mig í snjónum, þótt það sé komið sumar.
kv. Lappi
16.2.2011 | 15:56
Gulag Össurar
Auðvitað er maðurinn að lesa Gulag - Icesave er "skiptimyntin" inn í ESB
Við erum öll á leið í skuldafangelsi, nema forsetinn komi okkur til bjargar öðru sinni
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
Icesave-samningur samþykktur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2010 | 13:09
Berum hana út!
Á hennar vakt hefur fólk verið borið út af heimilum sínum.
Á hennar vakt versnar sífellt staða fyrirtækja og heimila.
Á hennar vakt verður vont verra.
Við gefum henni hér með góðfúslegt leyfi til að ljúka þessari vakt strax. Að öðrum kosti berum við hana út úr stjórnarráðinu.
kv. Hundamamman
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
Jóhanna: sit út kjörtímabilið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.10.2010 | 17:17
Reiknimeistarar ríkisins
Ég er farin að halda að það eina sem þessi stjórn reikni út, eða láti reikna út fyrir sig kunni hún það ekki, er hversu mikið safnist í eftirlaunasjóðinn hverja viku sem þau sitja límd við stólana, í óþökk meirihluta þjóðarinnar og þykjast vera að gera eitthvað fyrir heimilin.
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
Niðurstaðan gerbreytir allri umræðu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
15.10.2010 | 21:52
Spilling til vinstri
Þegar Steingrímur Joð var í stjórnarandstöðu, var hann óþreytandi að benda á einkavinaráðningar þáverandi stjórnar. En núna þegar vinir Samfylkingar eða VG fara í opinber störf á vafasömum forsendum þá sleppir hann því að mótmæla.
Ætli honum finnist spilling til vinstri svona miklu betri en spilling til hægri? Það er vægast sagt ömurlegt að horfa upp á þetta og vonin um betra Ísland dofnar sífellt meira og meira, í hvert skipti sem þessir Ó-stjórnarliðar tjá sig í fjölmiðlum.
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
Enginn umsækjenda kallaður í viðtal |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
8.10.2010 | 16:20
Bæturnar
Þessi velferðarstjórn er algjör brandari. Þau hækkuðu vaxta- og barnabætur á síðasta skattári, á þessu ári skulu þær skerðast. Ætli það hafi ekki bara verið inni í myndinni allan tímann, að ná því á næsta ári sem greitt er á þessu.
Hafi öldruðum og öryrkjum tekist að nurla saman í sparnað, er þeim refsað.
Jóhanna og Steingrímur eru bestu vinir bankahólfanna.
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
Allar greiðslur frá Tryggingastofnun tekjutengdar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.10.2010 | 21:54
Buuuuurrrrrrrrt!
Sviknu loforð Steingríms eru svo mörg. Kannski getur hann framkvæmt eitthvað sem hann lofaði ekki, t.d. komið með raunverulegar lausnir til bjargar íslenskri þjóð. En ég hef enga trú á því lengur, líkt og margir hellist vonleysið yfir þegar ríkisstjórnarliðið opnar munninn
Steingrímur heldur því fram að margt hafi áunnist, en það hefur alveg farið framhjá megin hluta þjóðarinnar. Undir lok ræðu sinnar hvetur hann okkur til þess að vera bjartsýn og trúa á framtíðina. Við mjökumst kannski í þá átt þegar þessi stjórn segir af sér.
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
Loforðið snerist um að fara ekki í flata skuldalækkun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
4.10.2010 | 18:27
Múrarnir
Í Þýskalandi reistu kommúnistar Berlínarmúrinn - Í Moskvu reistu kommúnistar Kremlarmúrinn
Á Íslandi er Alþingishúsið víggirt með áli. Hér er greinilega hrein vinstri stjórn.
Sjáumst á Austurvelli í kvöld - kveðja Hundamamman
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum. Ég mæti á mótmælin í kvöld, með mömmu.
Kveðja Lappi
|
Girðing um Alþingishúsið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
1.10.2010 | 19:28
Með augun gal-lokuð
Þessi maður sér ekkert nema eigið vald.
Þótt Sjálfstæðisflokkurinn megi alveg vera í fríi lengur, er það óásættanleg stefna Stjórnarflokks að gera hvað sem er til þess að halda völdum. Það er óafsakanlegt að fórna heill þjóðarinnar fyrir slíkan málstað.
Áður en Joðið komst í ríkisstjórn, bar ég mikla virðingu fyrir honum sem stjórnmálamanni, þótt ég væri ekki alltaf sammála honum. Sú virðing fauk korteri eftir stjórnarmyndun, um leið og hann sveik stefnu flokks síns.
Það er kominn tími til að hann galopni augun. Hann sæi þá máske vanda tugþúsunda heimila og snéri sér að einhverju öðru og þarfara en að halda íhaldinu frá völdum.
kv. Hundamamman
Ég lánaði mömmu bloggið mitt. Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð hennar og endurspeglar ekki á neinn hátt álit mitt á stjórnmálum
Kveðja Lappi
|
Óánægja vegna skuldavanda |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)












