Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Heija Norge!

Getið þið ekki fengið þessa ljótu hunda að láni? Wink

 

mio og eg 

Ég vil nefnilega ekki að hann Mio frændi minn flytji til ykkar. Mamma vill heldur ekki lána Norðmönnum Mio, mömmu hans, pabba og systkini. Hún er viss um að ekki verði um skammtímalán að ræða. Litla Rut frænka okkar vill að þau flytji aftur heim eftir viku Woundering

 

med Rutmed Rut aftur

 

En það er víst ekki alltaf hægt að fá allt sem maður (hundur) vill segir mamma. Við verðum að sætta okkur við að Mio og fjölskylda fari úr landi tímabundið. Ég og Mio litli frændi minn, kvöddumst með stæl

 bod 017 hluthafinn og eg  mio vill fa athygli

 

 


mbl.is Ljótustu hundar í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarið

sumardagur 001er loksins komið segir mamma. Ég er ekkert yfir mig spenntur, mér er allt of heitt. Við höfum verið úti á palli í allan dag, mamma að pússa við og bera á hann, ég hef lítið hjálpað, hef bara verið að leita mér að skuggsælum stað til að liggja á Blush

Ég, sem er mikið fyrir útivist, hef fengið nóg af hitanum úti í bili. Ég ætla að vera inni og liggja þar eins og klessa Sleeping


Ég get sýnt klærnar. . . .

. . . .  bara ekki allar Wink

Ég braut nefnilega kló á framloppu þegar ég fór út í fótbolta með Pálma hluthafa og Ingibjörgu. Það blæddi mikið úr sárinu og klóin dinglaði laflausW00t

Þegar mamma kom heim úr vinnunni í kvöld, var lausa klóin horfin. Mamma er alveg viss um að ég hafi étið hana Grin


Hæ hó jibbý jei og jibbý jei

 

 Það er kominn Sautjándi Júní Wizard

Ég hef verið að æfa mig í rifjaáti og bæti tímann stöðugt. Mamma segir að ég hljómi eins og grjótmulningsvél við átið. Það tekur mig bara 9 sekúndur að hakka í mig svínarif Happy Jíhaaaa !!

 

Ég fékk líka blöðru í dag, en það er bannað að borða hana.

17juni 001

Einhver þarf að þrífa upp skítinn

Ég þurfti að þrífa gangstéttina við innganginn hjá ömmu. Köttur hafði verið að þvælast þar þegar ég var ekki á kattarvakt og skitið stéttina út. Ég þreif að sjálfsögðu upp eftir köttinn. Það er nefnilega bannað að skíta á stéttina hjá ömmu Devil

Mamma varð frekar pirruð, dró mig úr átveislunni og sagði að ég ætti ekki að éta allt það sem á vegi mínum yrði Crying

Ég skil ekki af hverju hún var að æsa sig, ég var bara að þrífa. Ég hafði enga hugmynd um það, að ég mætti ekki éta skít Whistling Halo Whistling


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband