8.12.2008 | 21:03
Færðin/Færnin
Ólei, ólei, ólei óleieieieieieieieieiei!
Mamma lét sig hafa það að fara með mig í fótbolta, þrátt fyrir snjóalag á vellinum okkar. Mamma var óhress með færðina, og kenndi hálku um þegar löngu sendingarnar inn á völlinn klikkuðu. Oftar en ekki lenti ég bara ringlaður í boltaleit áðan
Ég skil þetta ekki
Þegar ég spila fótbolta við annað fólk, get ég hlaupið í þá átt sem það miðar. Mömmu boltar flugu í allar aðrar áttir en miðið sem var tekið. Henni tókst m.a.s. að sparka boltanum aftur fyrir sig og setja bílinn okkar í stórhættu á æfingu dagsins. Við þurfum því að finna okkur annað bílastæði. A.m.k. þangað til að fótboltafærðin, já eða bara fótboltafærnin, skánar
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Það má virða mömmu þinni til vorkunnar að hún er ekki á nelgdum....Þú ert þó á 4 negldum ;)
dyno (IP-tala skráð) 9.12.2008 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.