Bloggfærslur mánaðarins, október 2009
31.10.2009 | 17:10
Bráðum!!!!!
Sko, mamma sagði í hádeginu: Garpur kemur bráðum. Ég náði þessu alveg; Garpur kemur, en ég skil ekki þetta bráðum
Ég hef því vælt og stunið, og átt alveg ótrúlega bágt alveg frá hádegi. Ég hleyp hæða á milli, ligg vælandi á forstofugólfinu eða uppi í glugganum á herberginu mínu. Garpur kemur, ég veit það en það má alveg sleppa þessu "bráðum"
24.10.2009 | 20:41
Hundar og Kettir
Lítill kettlingur er fluttur heim til Hrafnhildar nágranna míns og vinkonu. Þessi óvelkomni íbúi lætur fara vel um sig í gluggakistunni og þykist ekki taka eftir mér og geðvonskulegu urrinu
Mamma getur tuðað út í eitt. Þessi litli kettlingur er ekki sætur, og hann verður ekki vinur minn
Ég hætti ekki þessu geðvonskulega urri úti á palli fyrr en hann flytur!
22.10.2009 | 16:03
Til hamingju elsku hluthafi
Ég skellti mér líka í sund og setti met, en bara óvart
Ég ætlaði nefnilega að stökka yfir skurð í Fossvogsdalnum áðan, en það tókst ekki alveg, ég lenti á maganum ofan í miðjum skurðinum. Og eins og það væri ekki nógu neyðarlegt (ég setti upp "það sá þetta enginn" svipinn), þá tók það mig margar tilraunir að skríða aftur upp úr mýrardrullunni
Ég hef aldrei orðið svona drullugur á ævinni, hef slegið met í að skíta mig út. Allur feldurinn er útataður í rauðum mýrardrulluklessum, og svo er kjafturinn líka fullur af drullu
Mamma er að fara að neyða mig í sturtu núna og segir að ég sé ekki húsum hæfur, skítugur og illa lyktandi. Ég ætti því að vera orðinn hreinn, strokinn og vellyktandi næst þegar við hittumst, þ.e.a.s. ef mömmu tekst að draga mig í sturtuna
Pálmi bætti eigið met á EM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2009 | 08:28
Ekki hundasund
Fjórir íslenskir keppendur í úrslitum á EM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2009 | 19:47
Úr vöndu að ráða
Mamma er að taka til í kjallaranum og þar er hellingur af spennandi dóti. Ég hef eignast nýjan bangsa, búinn að rífa hann á hol, og mín bíða fleiri loðdýr niðri. Ég þarf bara næði til þess að ná þeim
En mamma er líka að baka, svo að ég þarf nauðsynlega að vera á eldhúsvaktinni. Lyktin af rúgbrauðinu í ofninum er svo lokkandi
Ég veit bara ekkert hvar ég á að vera, ég get ekki valið. Ég er því á sífelldu spani milli geymslunnar og eldhússins. Ég er að verða dálítið þreyttur á þessum hlaupum upp og niður stigann, og dotta því stöku sinnum fyrir framan bakaraofninn, þegar ég tek eldhúsvaktina
En ég veit að þessi hlaup mín eiga eftir að borga sig. Ég finn örugglega fleiri bangsa í kjallaranum. Og svo er það alveg á hreinu að ég fæ líka rúgbrauð, loksins þegar það verður tekið úr ofninum