29.6.2008 | 21:54
Útivera
Jíhaaaaaaa Veðrið undanfarna daga hefur verið æðislegt, því verið mjög auðvelt að draga mömmu út úr húsi. Ja, ég ætti kannski að segja að erfitt sé að ná henni í hús. Við viðrum okkur oft á dag, göngur, hundafótbolti og heimsóknir. Svo má víst ekki gleyma því sem mér finnst ekkert sértaklega spennandi eða skemmtilegt að gera, en það er að liggja í sólbaði úti í garði. Ég held að ég taki ekki annan lit en þann sem ég hef. En ég læt mig svo sem hafa það, þegar ekkert betra býðst
Vonandi verður ekki lát á veðurblíðunni. Ég fékk nefnilega alveg nóg af kuldakaflanum áður en voraði. Þá var stundum erfitt að fá mömmu með sér í Elliðarádalinn í frosti og roki. Af hverju veit ég ekki. Kannski hún hafi ekki þolað fjólubláa litinn í andlitinu, já eða þá að málningin, sem tekur svo hrikalega langan tíma að setja á sig áður en farið er út, hafi fokið af henni
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.