11.1.2009 | 00:31
Mótmælakennsla
Mamma er hundveik
Já eða hún er a.m.k. lasin, og því gátum VIÐ ekki mætt á Austurvöll. Hún fékk engan til þess að mæta fyrir sig í mannfjöldann með mig í taumi.
Mömmu hundleiðast þessi veikindi strax á degi eitt. Því ætlar hún að nota vökutímann í eitthvað skynsamlegt. Og það þýðir að ég þarf að læra nýja hundakúnst. Nú á ég að spangóla í hvert sinn sem mamma segir orðið "Mótmæli"
Þetta kennsla gengur ekki vel. Við erum búin að reyna þetta nokkrum sinnum í dag. Ég skil ekki þessa skipun: "Lappi syngja" Ég hef legið flatur á gólfinu- dauður, gengið á afturfótum, farið í heljarstökk, velt mér, setið og horft á hana örvæntingarfullur á svip "Hvað er eiginlega að þér góða, hvað þarf ég eiginlega að gera til þess að fá þetta nammi sem þú ert með í höndunum"?
Mamma hefur því ákveðið að kalla til aðstoðarþjálfara á morgun. Sökum heilsubrest, getur hún ekki hangið með mig úti í garði þegar kirkjuklukkurnar hringja, hún hangir varla uppi innandyra. Ég spangóla gjarnan með kirkjuklukkum, og því heldur mamma að kjöraðstæður verði til kennslu þegar hringt verður inn í seinni messu sunnudagsins. Hún vill því kalla saman klapplið sem hælir mér í hástert í hvert sinn sem ég læt í mér heyra og verðlaunar mig fyrir vikið. "Duglegur strákur, Lappi syngja"
My brother, Where art thou? Mamma er með óráði
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 01:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.