14.10.2009 | 19:47
Úr vöndu að ráða
Mamma er að taka til í kjallaranum og þar er hellingur af spennandi dóti. Ég hef eignast nýjan bangsa, búinn að rífa hann á hol, og mín bíða fleiri loðdýr niðri. Ég þarf bara næði til þess að ná þeim
En mamma er líka að baka, svo að ég þarf nauðsynlega að vera á eldhúsvaktinni. Lyktin af rúgbrauðinu í ofninum er svo lokkandi
Ég veit bara ekkert hvar ég á að vera, ég get ekki valið. Ég er því á sífelldu spani milli geymslunnar og eldhússins. Ég er að verða dálítið þreyttur á þessum hlaupum upp og niður stigann, og dotta því stöku sinnum fyrir framan bakaraofninn, þegar ég tek eldhúsvaktina
En ég veit að þessi hlaup mín eiga eftir að borga sig. Ég finn örugglega fleiri bangsa í kjallaranum. Og svo er það alveg á hreinu að ég fæ líka rúgbrauð, loksins þegar það verður tekið úr ofninum
11.9.2009 | 20:38
Ég biðst afsökunar
Ingibjörg og Pálmi voru ekki ánægð með mig þegar þau fylgdu mér heim af síðustu fótboltaæfingu
Ég hitti tík á heimleiðinni, sem ég þurfti aðeins að hnusa af. Ég varð samstundis hrifinn og ákvað að gera eitthvað í málunum. Ég varð að merkja hana
Fótboltafélagar mínir afsökuðu hegðun mína og voru alveg miður sín. En þar sem óþekktarkúlur mínar hafa verið fjarlægðar, þá vissi ég bara ekki hvernig ég ætti að láta hrifningu mína í ljós. Ég pissaði því bara á tíkina
2.9.2009 | 22:18
Íslenskt! Já takk!
Mamma er ákaflega hlynnt þessu slagorði, kaupir íslenskt sem aldrei fyrr þessa dagana. Hún mun því örugglega kaupa íslenskan hundamat fyrir mig
Nammi Namm Nammi Namm
Ég er nefnilega dýr á fóðrum. Frekar dýr og þungur á fóðrum, núna kostar maturinn minn tæpar þúsund krónur hvert kíló. Mamma heldur að hún sé að gera það eina rétta í hundafóðrun með kaupum á þessum óheyrilega dýra þurrmat. En Haddi bendir stöðugt (og réttilega) á að mér sé nákvæmlega sama hvað ég fæ að borða. Ég borða nánast allt. Ég geri líka nánast allt fyrir mat
Ja nema dansa, en það hefur áður komið fram. Hundar eins og ég dansa ekki fyrir hundanammi
ps Af hverju er mynd af svona litlum hundi við fréttina? Vitið þið hvað heyrist hátt í svona litlum trítlum? Ég þarf iðulega að forða mér með hraði þegar ég mæti svona smáhundum
Íslenskur hundamatur brátt á markað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2009 | 23:24
Hundur í kreppu
Við mamma höfum oft hitt áhugavert fólk og hunda í daglegri viðrun okkar. Stundum höfum við stoppað og spjallað, mamma hefur þá séð um að tala, ég hnusa bara.
Dag einn hittum við mamma svo mann, já eða bara kaggl, eins og Díana frænka mín myndi segja. Og þessi kaggl er alveg frábær. Mömmu líkaði strax vel við hann, ég var alveg sáttur líka, hann nennti nefnilega að tala við mig. Og svo leist honum svo vel á mig að hann er enn að hitta okkur mömmu.
Nú er kagglinn að verða sambýlingur okkar mömmu. Ég er svo sem sáttur, en bara upp að vissu marki. Ég hef lengi átt hana mömmu aleinn og verið miðpunkturinn. Núna er hann sífellt að kyssa mömmu mína og knúsa hana. En hann getur bara alveg sleppt því. Ég vil nefnilega eiga hana mömmu mína einn. Ég get alveg kysst hana og knúsað aleinn
Ég er samt mjög ánægður með þennan kaggl og vil eiga hann. Hann nennir út í göngu, hann er betri í fótbolta en mamma, hann kann að grilla lambalæri og svo er hann góður geitungabani. Ég knúsa hann og kyssi í hvert sinn sem hann gengur inn um dyrnar. En þá kemur mamma og heimtar að fá að faðma hann líka. Ég þoli það ekki. Hann má kyssa mig, hún má kyssa mig. Þau mega ekki faðmast án þess að hafa mig á milli
Reyni þau að kyssast, mæti ég á svæðið. Liggi þau í faðmlögum í sófanum við sjónvarpsgláp, treð ég mér á milli. Ætli þau að borða saman við kertaljós, trufla ég í sífellu svo rómantíkin fari ekki úr böndunum. Ég vil eiga þennan mann, ég vil eiga hana mömmu, saman geta þau átt mig. En þau mega bara alls ekki gleyma mér og eiga hvort annað. Ég þoli það ekki. Ég er afbrýðissamur
11.8.2009 | 15:47
Ég vissi það!!
Ég fagna fyrsta sætinu og flagga
Ég skil fullt af orðum, t.d. borða, svangur, matur, nammi og ís
En mamma er nokkuð viss um að ég kunni ekki að reikna, þrátt fyrir skynsemina. Svo hef ég fánalögin ekki alveg á hreinu heldur
Mamma var ekkert sátt við hvernig ég fór með fánann. Fyrir mér er fáninn bara dót, eitthvað til þess að rífa niður með beittum tönnum. En Mamma gat ekki horft upp á fánaátið aðgerðarlaus og tók hann frá mér röflandi og steinhissa á framferði mínu
" Lappi, svona fer maður ekki með frelsistáknið, íslenska fánann"
Ég er nú bara hundur og fæ mér þá eitthvað annað til þess að japla á. Kannski leyfir mamma mér að rífa bláan fána með gulum stjörnum í tætlur
Jafn greindir og 2 ára börn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2009 | 00:25
Verslunar - menn og konur !!
Til hamingju með mánudaginn
Þótt ég geri mér ekki grein fyrir því að þið eigið að eiga frí, er mamma með á nótunum. Hún veit að hún þrifist ekki án ykkar
Þið sem starfið í "hundanammibúðunum" eigið kannski frí. Ég hef komið inn í nokkrar slíkar búðir og tapa mér alltaf í gleðinni yfir kræsingum. Ég get aldrei haldið mig á mottunni, jafnvel þótt ein slík sé staðsett við dyrnar
Ég fæ alltaf nóg að éta, þökk sé ykkur
29.7.2009 | 22:17
Hundasund í Dalnum
Ég fór á sundnámskeið
Hluthafinn, margfaldur meistari í sundi, sá um kennsluna.
Nú er ég ekki hundurinn Lappi
Ég er Lappi höfrungur
30.6.2009 | 17:02
Heija Norge!
Getið þið ekki fengið þessa ljótu hunda að láni?
Ég vil nefnilega ekki að hann Mio frændi minn flytji til ykkar. Mamma vill heldur ekki lána Norðmönnum Mio, mömmu hans, pabba og systkini. Hún er viss um að ekki verði um skammtímalán að ræða. Litla Rut frænka okkar vill að þau flytji aftur heim eftir viku
En það er víst ekki alltaf hægt að fá allt sem maður (hundur) vill segir mamma. Við verðum að sætta okkur við að Mio og fjölskylda fari úr landi tímabundið. Ég og Mio litli frændi minn, kvöddumst með stæl
Ljótustu hundar í heimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.6.2009 | 18:35
Sumarið
er loksins komið segir mamma. Ég er ekkert yfir mig spenntur, mér er allt of heitt. Við höfum verið úti á palli í allan dag, mamma að pússa við og bera á hann, ég hef lítið hjálpað, hef bara verið að leita mér að skuggsælum stað til að liggja á
Ég, sem er mikið fyrir útivist, hef fengið nóg af hitanum úti í bili. Ég ætla að vera inni og liggja þar eins og klessa
24.6.2009 | 01:32
Ég get sýnt klærnar. . . .
. . . . bara ekki allar
Ég braut nefnilega kló á framloppu þegar ég fór út í fótbolta með Pálma hluthafa og Ingibjörgu. Það blæddi mikið úr sárinu og klóin dinglaði laflaus
Þegar mamma kom heim úr vinnunni í kvöld, var lausa klóin horfin. Mamma er alveg viss um að ég hafi étið hana